Það var síðastliðið sumar sem Birgitta fékk þá frábæru hugmynd að fara tónleikaferð í kringum landið þar sem allur ágóði rynni óskiptur til góðs málefnis. Var ákveðið að kanna áhuga stórfyrirtækja um að styrkja slíka tónleikaferð enda væri hún kostnaðarsöm. Íslandsbanka leist strax vel á hugmyndina og var skrifaður undir samstarfssamningur snemma hausts. Sá samningur gerði okkur kleift að fara í þessa tónleikaferð og málefnið sem valið var, voru samtök Einstakra barna.

Farið var um land allt, alls 11 staði og lauk tónleikaferðinni í Reykjavík 3. des s.l. Tókst hún alveg frábærlega en alls söfnuðust um 2,4 milljónir sem koma Einstökum börnum afar vel í stuðningi þeirra við langveik börn.