Þriðja plata Írafárs litin dagsins ljós:
Undirbúningur fyrir útgáfu þriðja geisladisks hljómsveitarinnar hófst í vor s.l. þegar farið var í ferð upp í Húsafell þar sem tekin voru upp slatti af demóum sem síðar var valið úr. Eftir að búið var að velja lögin hófust upptökur hér á Íslandi sem héldu svo áfram í Danmörku þar sem við leigðum okkur sveitasetur og eyddum þar 2 vikum við upptökur og útsetningar. Þegar heim var komið aftur var diskurinn kláraður og kom hann út núna í nóvember. Á honum eru 11 lög, öll eftir Vigga og textar eftir Birgittu og fleiri. |