Hljómsveitin var stofnuð í febrúar 1998 af þeim Vigga og Sigga ásamt Steina fyrrverandi trommara. Voru menn stórhuga og átti að stofna alvöru sveitaballahljómsveit og herja á landann. Mesti höfuðverkurinn í byrjun var að finna nafn á sveitina. Fyrsti söngvarinn var Íri að nafni Kenneth, og þess vegna datt Steina í hug nafnið Írafár. Festist það svo endanlega þegar söngkona að nafni Íris var ráðin sem söngkona sveitarinnar. Herjað var á landann með spilamennsku út um allt og fell það í góðan jarðveg. Sveitin komst þó ekki almennilega á kortið fyrr en lagið “Hvar er ég” kom út en það var árið 2000 þegar Birgitta hafði tekið við söngkonuhlutverkinu. Svo fylgdu login “Fingur” og “Eldur í mér” sem urðu vinsæl og festi sveitina enn meir í sessi. Fyrsti diskurinn leit svo dagsins ljós haustið 2002 en þá hafði hljómsveitin farið um víðann völl með Bylgjulestinni sumarið áður. Má segja að hann hafi slegið í gegn því “Allt sem ég sé” seldist í um 19 þúsund eintökum og hefur önnur eins sala á jafn stuttum tíma ekki sést. Annar diskurinn, “Nýtt upphaf” kom svo út ári síðar og seldist í um 12 þúsund eintökum. Fengu meðlimir því afhenda gull – og platínuplötu fyrir báðar þessar plötur sem má teljast frábær árangur. Arið 2004 var rólegt hjá hljómsveitinni og var hún aðallega að vinna í nýju efni sem kom út núna haustið 2005 á þriðja disk sveitarinnar sem ber nafn hennar. Hefur hljómsveitin nýlokið við tónleikaferð sem nefndist Íslandstúrinn, en hann var farinn til styrktar Einstökum börnum og gekk hann framar öllum vonum.