![]() |
| 30. nóvember 2005 |
| Tónleikaferðin |
| Það var spenntur 12 manna hópur sem hóf Íslandstúrinn þann 12. nóvember s.l. en þá var ferðinni heitið til Selfoss þar sem fyrstu tónleikarnir voru haldnir. Farið var á rútu auk sendibíls sem var með allar græjurnar innanborðs. Ferðin gekk nær áfallalaus fyrir sig, veðrið var gott allan tímann en við vorum smá smeyk við að veðrið gæti sett strik í reikninginn. Lentum í einni og einni hálku á leiðinni sem þykir ekkert tiltökumál í bílstjórabransanum. Mórallinn í ferðinni var frábær og skemmtum við okkur konunglega á öllum þeim stöðum sem við komum til og fengum einnig frábærar móttökur. |
![]() |



