24. desember 2005
Gleðilega hátíð öll sömul!
Við í hljómsveitinni óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með kærri þökk fyrir það gamla sem var um margt eitt af þeim skemmtilegri í sögu hljómsveitarinnar. Danmerkurferðin og tónleikaferðin um landið standa þar hæst, en sjaldan hefur bandið skemmt sér eins vel.